Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 05. desember 2020 15:03
Ívan Guðjón Baldursson
Patrik fékk mark á sig undir lokin - Birkir Valur spilaði í sigri
Mynd: Getty Images
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Patrik Sigurður Gunnarsson var nálægt því að halda hreinu er Viborg heimsótti Fremad Amager í B-deild danska boltans í dag.

Viborg tók forystuna á 83. mínútu en heimamenn í Amager jöfnuðu undir lokin.

Viborg er á toppi deildarinnar með 34 stig eftir 14 umferðir. Fremad Amager er í fimmta sæti með 20 stig.

Fremad Amager 1 - 1 Viborg
0-1 S. Grönning ('83)
1-1 L. Engel ('90)

Í Slóvakíu tók Birkir Valur Jónsson þátt í stórsigri Spartak Trnava gegn Sered.

Trnava var í fjögurra marka forystu í hálfleik og staðan 1-5 þegar Birkir Valur kom inn á 76. mínútu.

Lokatölur urðu 2-6 fyrir Trnava sem er í fjórða sæti, með 23 stig eftir 16 umferðir. Birkir Valur var ónotaður varamaður síðustu þrjá leiki.

Nói Snæhólm Ólafsson var þá ónotaður varamaður er Senica gerði jafntefli við Nitra.

Senica er í fallbaráttunni með 16 stig eftir 16 umferðir, Nói hefur ekki komið við sögu síðan 11. september.

Sered 2 - 6 Trnava

Nitra 1 - 1 Senica

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner