Úkraínski miðjumaðurinn Ivan Kaliuzhnyi er kominn með leikheimild með Keflavík og gæti því spilað sinn fyrsta leik með liðinu á morgun.
Keflavík tekur á móti ÍBV í fjórðu umferð Bestu deildar karla og er Keflavík í leit að sínu fyrsta stigi í sumar.
Keflavík tekur á móti ÍBV í fjórðu umferð Bestu deildar karla og er Keflavík í leit að sínu fyrsta stigi í sumar.
Keflavík tilkynnti um komu Ivan fyrir rúmum tveimur vikum síðan en hann er fyrst núna kominn með leikheimild. Hann kemur á láni frá úkraínska félaginu FK Oleksandriya.
Leikurinn á morgun hefst klukkan 16:00 á HS-orku vellinum í Keflavík.
Athugasemdir