Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 07. október 2020 14:30
Magnús Már Einarsson
Úkraína með 45 ára markmannsþjálfara í hóp eftir smit
Oleksandr Shovkovskiy
Oleksandr Shovkovskiy
Mynd: Getty Images
Úkraína hefur bætt markmannsþjálfaranum Oleksandr Shovkovskiy við leikmannahóp sinn fyrir vináttuleikinn gegn Frökkum í kvöld.

Hinn 45 ára gamli Shovkovskiy lagði hanskana á hilluna árið 2016 en hann verður á bekknum í kvöld eftir að markverðirnir Andriy Lunin og Yuriy Pankiv greindust báðir með kórónaveiruna.

Vináttuleikurinn fer fram í París og Shovkovskiy verður á bekknum til taks en hann kemur inn á ef eitthvað kemur upp á hjá markverðinum Georgiy Bushchan.

Franski varnarmaðurinn Leo Dubois missir einnig af leiknum í kvöld en hann er með kórónuveiruna.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner