Sergio Ramos, varnarmaður Real Madrid, kveikti heldur betur í stuðningsmönnum PSG í dag en hann sást skrifa athugasemd við mynd hjá Neymar á Instagram.
Neymar setti inn mynd af sér á Instagram þegar hann var búinn að skrifa undir nýjan samning við frönsku risanna. Á myndinni heldur hann á treyju PSG og á henni stendur 2025.
Sergio Ramos tók sig til og skrifaði athugasemd við myndina hjá Neymar. Þar setti hann inn nokkur lófatök „emoji" og er að fagna þessum fregnum hjá Neymar.
Í kjölfarið fór Twitter að loga hjá stuðningsmönnum PSG sem binda nú miklar vonir við það að Ramos muni koma til PSG á frjálsri sölu eftir tímabilið.
Framtíð hans hefur verið í mikilli óvissu en hann hefur enn ekki samið við Real Madrid. Florentino Perez, forseti Real Madrid, sagði á dögunum að hann elskar Ramos en að félagið sé í vandræðum fjárhagslega og gæti því þurft að leyfa fyrirliðanum að fara.
Sergio Ramos is getting PSG's fans hyped 👀⏳ pic.twitter.com/JAruhMNbwn
— ESPN FC (@ESPNFC) May 9, 2021
Athugasemdir