
Alex Morgan, ein öflugasta fótboltakona í heimi, segir það stórskrítið að ferðamannaiðnaðurinn í Sádí-Arabíu fái að vera einn aðalstyrktaraðilinn á heimsmeistaramóti kvenna.
Visit Saudi verður einn aðalstyrktaraðilinn á mótinu sem fer fram í Ástralíu og Nýja-Sjálandi næsta sumar.
Visit Saudi verður einn aðalstyrktaraðilinn á mótinu sem fer fram í Ástralíu og Nýja-Sjálandi næsta sumar.
Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa lýst mannréttindabrotum í Sádí-Arabíu sem „ógeðslegum" en samkynhneigð er bönnuð í landinu og þá hafa réttindi kvenna ekki verið í hávegum höfð. Konur í Sádí-Arabíu máttu til að mynda ekki horfa á fótboltaleiki fyrr en árið 2018. Þess ber þó að geta að kvennalandslið Sádí-Arabíu var nýverið sett á laggirnar.
„Það er stórskrítið að FIFA skuli leita til Visit Saudi sem styrktaraðila fyrir HM kvenna. Það yrði ekki komið vel fram við mig í landinu," segir Morgan en hún er hluti af bandaríska landsliðinu sem þykir líklegt til afreka á mótinu.
Það hefur rætt og ritað um það að stjórnvöld í Sádí-Arabíu séu að nota fjárfestingar í íþróttum til að hvítþvo sig af mannréttindabrotum og öðrum óþverra.
Gianni Infantino, forseti FIFA, og sambandið í heild hafa legið undir mikilli gagnrýni síðustu vikur og mánuði vegna þöggunar sem var í kringum heimsmeistaramótið í Katar er varðar mannréttindabrot þar í landi. KSÍ ákvað í kjölfarið að hætta að styðja við bakið á Infantino.
Sjá einnig:
Voru ekki látin vita af stórum styrktaraðila frá Sádí-Arabíu
Athugasemdir