Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   lau 10. apríl 2021 07:00
Victor Pálsson
Guardiola um Aguero: Ég vil það sem hann vill
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hefði ekkert á móti því að spila á móti Sergio Aguero í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

Aguero mun kveðja Man City í sumar en óvíst er hver næst áfangastaður hans er.

Guardiola segist aðeins vilja það besta fyrir Aguero hvort sem það sé á Englandi eða ekki.

„Við óskum honum alls hins besta. Hann þarf að finna það besta fyrir Sergio á síðustu árum ferilsins," sagði Guardiola.

„Við verðum hæstánægðir með hvaða ákvörðun sem hann tekur sem er best fyrir hann og fjölskylduna."

„Ég vil það sem hann vill. Það sem er best fyrir hann er best fyrir okkur."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner