Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 11. apríl 2021 21:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrsta markið minnti á gömlu góðu tímana
Mynd: Getty Images
Arsenal vann frekar auðveldan sigur á Sheffield United í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Fyrsta markið í leiknum var það besta en það gerði Alexandre Lacazette eftir frábæra sókn.

„Sendingarnar og hreyfingin, hraði sendinganna, þetta var bara frábært," sagði Mark Lawrenson, sérfræðingur BBC um markið.

„Ég er ekki viss um að við höfum séð betra mark í deildinni um helgina."

Það er óhætt að segja að þetta hafi minnt á gömlu góðu tímana hjá Arsenal þegar stjörnur eins og Thierry Henry og Dennis Bergkamp voru í liðinu.

Hægt er að sjá mörkin úr leiknum hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner