Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 11. júlí 2021 20:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðný kynnt til leiks hjá AC Milan - Verður númer fjögur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmiðvörðurinn Guðný Árnadóttir er mætt til ítalska stórliðsins AC Milan.

Guðný, sem er tvítug að aldri, varði síðustu leiktíð hjá Napoli á láni þar sem hún stóð sig vel.

„Hún stóð fyrir sínu. Hún var ísköld í vörninni, stórgóð á boltanum og með flottar sendingar. Árnadóttir gæti verið mikilvæg fyrir Milan á næstu leiktíð... Árnadóttir er tilbúin," sagði á vefsíðunni Milan Reports eftir 4-0 sigur Milan gegn Napoli fyrr á þessu ári.

Milan er á sama máli því Guðný er komin með treyjunúmer hjá Milan á næstu leiktíð. Hún mun klæðast treyju númer fjögur hjá ítalska stórliðinu.

„Það er frábært að vera hérna og gott að sjá alla söguna," segir Guðný sem er spennt fyrir komandi tímum.


Athugasemdir
banner
banner
banner