Tottenham og Newcastle hafa áhuga á Grealish - Newcastle bjartsýnt á að fá Guehi - Elanga í læknisskoðun
Einar Guðna þurfti ekki að hugsa málið - „Algjört draumastarf"
Halli: Er ekkert í þessu til að hefna fyrir eitt né neitt
Halli Hróðmars: Orðið ansi þungt leik eftir leik
Úlfur Ágúst: Ég reyndi og sem betur fer fór hann inn
Jökull: Við vorum líklegri og sköpuðum betri færi
Heimir Guðjóns: Vítið sem Stjarnan fékk var rangur dómur
„Ekki búin að því og ég veit ekki hvort maður muni gera það"
Svaf ekki mikið - „Þurfum að nota þetta sem spark í rassinn"
Sár, svekkt og leið - „Ég er ekki sú ferskasta núna"
„Þetta er ekki upplifun sem ég hef fengið áður"
Steini: Ég er með samning áfram
Guðrún: Mikið af knúsum og ekki mikið af orðum
Cecilía: Leiðinlegt að hafa ekki gert meira fyrir þau
Karólína Lea: Það er langt síðan ég hef grenjað svona
Magnað viðtal við Glódísi - „Mun aldrei fyrirgefa mér það"
Ingibjörg meyr: Við ætlum að fokking vinna Noreg
Dagný: Ég hefði viljað ná að brjóta
Haddi: Ég skil ekki af hverju allir efast um Viðar
Ívar Örn: Það fer okkur mjög vel að spila hér í Laugardalnum
Grímsi: Vonandi er stíflan brostin sem ég er búinn að vera að glíma við
   fös 11. ágúst 2017 21:53
Elvar Geir Magnússon
Ingvar Ásbjörn: Stefnum á að vinna rest
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingvar Ásbjörn Ingvarsson skoraði eina markið þegar Leiknir R. vann Fylki 1-0 í Inkasso-deildinni í kvöld.

Lestu um leikinn: Leiknir R. 1 -  0 Fylkir

„Frábær barátta, frábær sigur. Þetta eru skemmtilegustu leikirnir, skora 1-0 og halda það út. Þetta var hörkuleikur. Fylkir er með frábært lið og það eru miklar líkur á þeir fari upp," segir Ingvar.

Þrátt fyrir að Leiknir hafi þannig lagað að engu að keppa í deildinni vantaði ekki viljann og baráttuna í Breiðhyltinga í kvöld.

„Við erum ákveðnir í að klára okkar leiki. Það er engin pressa á okkur. Við höldum bara áfram og vinnum fleiri leiki. Við ætlum bara að vinna rest. Þegar það er engin pressa á okkur virðumst við spila best."

Ingvar skoraði tvö gegn Leikni Fáskrúðsfirði á dögunum og er nú kominn með þrjú mörk í tveimur síðustu leikjum.

„Ég tel mig vera markaskorara og þetta er að ganga upp. Þegar ég fæ spiltíma þá skora ég."

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar er Ingvar, sem er uppalinn FH-ingur, meðal annars spurður út í bikarúrslitaleik FH og ÍBV á morgun.
Athugasemdir
banner
banner