Aron Jóhannsson var ekki með Val í gærkvöldi þegar liðið vann 4-0 sigur gegn ÍA. Aron var fjarverandi vegna meiðsla.
Arnór Smárason fékk þá tækifæri í byrjunarliðinu, lék sem sóknarmiðjumaður í fjarveru Arons og átti tvær stoðsendingar gegn uppeldisfélagi sínu.
Arnór Smárason fékk þá tækifæri í byrjunarliðinu, lék sem sóknarmiðjumaður í fjarveru Arons og átti tvær stoðsendingar gegn uppeldisfélagi sínu.
Heimir Guðjónsson sagði í samtali við Sverri Örn Einarsson, fréttamann Fótbolta.net, eftir leik í gær að hann vonaðist til þess að Aron yrði klár í næsta leik.
Það verður þá alvöru hausverkur fyrir Heimi að velja byrjunarliðið en hann hafði haldið sig við sama lið í fyrstu fjóru umferðunum, áður en kom að leiknum í gær.
Valsmenn eru í öðru sæti Bestu deildarinnar og eru enn án ósigurs. Liðið mætir Stjörnunni á sunnudagskvöld.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir