Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 15. janúar 2021 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Ronaldinho er orðinn rappari
Mynd: Getty Images
Hinn fertugi Ronaldinho lætur sér ekki leiðast í lífinu en hann hefur ákveðið að gerast rappari og er búinn að búa til brasilíska rapp grúppu.

Grúppan heitir Tropa do Bruxo og er búin að gefa út sitt fyrsta lag á Youtube. Ronaldinho stofnaði grúppuna og er sagður hafa skrifað fyrsta lagið þegar hann sat í fangelsi í Paragvæ ásamt bróður sínum.

„Ég vildi fara í þetta verkefni vegna þeirra áhrifa sem tónlist hefur á fólk. Ég hef alltaf haft áhuga á að semja tónlist," sagði Ronaldinho í viðtali við O Globo.

Fyrsta lag Tropa do Bruxo var gefið út á aðfangadag og hefur verið spilað rúmlega 2,5 milljón sinnum á Youtube.

Grúppan gaf svo sitt annað lag út í dag, föstudag, sem heitir Role Aleatorio.

Hér fyrir neðan má sjá fyrsta lag rapphópsins Tropa do Bruxo


Athugasemdir
banner
banner
banner