Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 16. janúar 2020 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hazard: Gott að finna fyrir gleði á ný eftir Conte og Sarri
Hazard tekinn af velli af Maurizio Sarri
Hazard tekinn af velli af Maurizio Sarri
Mynd: Getty Images
Eden Hazard yfirgaf Chelsea síðasta sumar og gekk í raðir Real Madrid á Spáni.

Hazard var í viðtali í gær þar sem hann tjáði sig um breyttar áherslur á æfingum eftir að hann hélt til Spánar.

„Á æfingu notum við bolta og það er hreyfing og spilað," sagði Hazard.

„Þegar þú vinnur með ítölskum þjálfurum eins og ég gerði með (Antonio) Conte og (Maurizio) Sarri, þá ertu ekki eins glaður."

„Þeir eru stífir og vilja mikið af endurtekningum. Ég var í þrjú ár undir stjórn þeirra og því gleður það mig að uppgötva hamingju á ný,"
sagði Hazard að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner