Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 17. febrúar 2020 23:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Oblak: Ég hef áhyggjur af öllum leikmönnum Liverpool
Mynd: Getty Images
Atletico tekur á móti Liverpool annað kvöld í fyrri viðureign liðanna í Meistaradeild Evrópu. Jan Oblak, markvörður Atletico, mætir þar einni bestu sóknarlínu Evrópu.

„Við höfum skoðað allt," sagði Oblak aðspurður um Mo Salah, Roberto Firmino og Sadio Mane.

„Þeir eru þrír frábærir leikmenn en þeir eru ekki þeir einu. Liverpool er með frábært lið og allir leikmenn liðsins eru mjög góðir, ofan á það eru þeir á miklu skriði."

„Ég hef áhyggjur af þeim öllum. Við spilum gegn frábæru liði en ekki einungis þremur frábærum leikmönnum. Þeir hafa einungis tapað einum leik á þessari leiktíð og þeir eru verðskuldað taldir líklegri."

„Við ætlum samt ekki að gefast upp og við ætlum að ná í góð úrslit annað kvöld,"
sagði Oblak að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner