Báðir markverðir ÍR meiddir
ÍR fengu Njarðvíkingar í heimsókn í Breiðholtið þegar flautað var til leiks í 6.umferð 2.deildar karla nú í kvöld. Leikurinn þótti bragðdaufur en hann endaði með 1-1 jafntefli.
„Svekkjandi að ná ekki að halda þessu fannst mér, þetta var nú enginn fallegur fótbolti" Sagði Jóhannes Guðlaugsson þjáfari ÍR eftir leikinn.
„Mér fannst við gera það rétta í stöðunni og fórum svolítið í power fótbolta og ég held að við getum alveg verið sáttir með 1-1."
„Svekkjandi að ná ekki að halda þessu fannst mér, þetta var nú enginn fallegur fótbolti" Sagði Jóhannes Guðlaugsson þjáfari ÍR eftir leikinn.
„Mér fannst við gera það rétta í stöðunni og fórum svolítið í power fótbolta og ég held að við getum alveg verið sáttir með 1-1."
Lestu um leikinn: ÍR 1 - 1 Njarðvík
ÍR-ingar urðu fyrir þeim skakkaföllum að missa markvörðinn sinn, Helga Freyr Þorsteinsson útaf í meiðsli þegar rúmlega klukkutími var liðinn af leiknum en hann lenti í samstuði við Kenneth Hogg framherja Njarðvíkur. Jóhannes var ósáttur með að ekkert var gert þegar hann missti markvörðin sinn af velli.
„Ég er ósáttur við þetta atvik þarna og ég var nú ekkert að æsa mig yfir því en þegar maður spáir í það þá er þetta vont mál að missa markmanninn útaf með þessum hætti og ekkert er gert."
ÍR var ekki með neinn varamarkmann á skýrslu en hann glímir líka við meiðsli og eins og staðan er þá eru báðir markverðir ÍR meiddir.
„Það er staðan, ég var bara að koma úr símtali núna til þess að fara í þau mál þannig að það verður væntalega leyst fyrir næsta leik."
„Annaðhvort erum við að fá með undanþágu eins og gengur þegar markmennirnir fara í meiðsli báðir að fá markmann. Annaðhvort gerum við það eða það er önnur lausn sem við erum að vinna í."
Í leik sem þótti ekki fallegur áhorfs að þá virðir ÍR stigið.
„Já við gerum það en mér hefði ekki þótt ósanngjarnt þó við hefðum farið með öll þrjú en ég virði stigið algjörlega."
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
Athugasemdir























