Fimm stór félög að eltast við Semenyo - Man Utd í viðræðum um nítján ára miðjumann - Arsenal hefur áhuga á leikmanni AC Milan
   mið 17. desember 2025 23:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Drátturinn í deildabikarnum: Lundúnaslagur og City mætir Newcastle
Mynd: EPA
Búið er að draga í undanúrslitin í enska deildabikarnum en það var dregið eftir leiki kvöldsins.

Newcastle vann dramatískan sigur gegn Fulham og Man City lagði Brentford. Newcastle og Man City mætast í undanúrslitum.

Chelsea vann Cardiff í gær en liðið mætir Arsenal eða Crystal Palace í Lundúnaslag. Arsenal og Crystal Palace mætast á Þorláksmessu og þá kemur í ljós hvort liðið mætir Arsenal.

Fyrri leikirnir í undanúrslitunum fara fram um miðjan janúar og seinni leikirnir í byrjun febrúar.

Undanúrslitin
Newcastle - Manchester City
Chelsea - Arsenal/Crystal Palace
Athugasemdir
banner
banner