Liverpool hefur áhuga á Van de Ven - Palmer til í að spila fyrir Man Utd - Real Madrid og Man Utd sýna Neves áhuga
Atvinnumaðurinn Logi Tómasson - Annar hluti
Atvinnumaðurinn Logi Tómasson - Fyrsti hluti
Fékk Skagaelítuna á bakið - „Eflaust brotið einhver hjörtu hefði ég ekki komið“
Tekur við eftir að leikmenn neituðu að spila fyrir félagið
Lítur fyrst og fremst á sig sem Norðmann - „Mig langar bara að vinna"
Siggi Lár: Ætla ekki ræða einhver ákvæði í samningnum núna
Valdi Keflavík fram yfir ÍBV - „Þykir rosalega vænt um fólk í Eyjum“
Gummi Magg: Sá fyrir mér öðruvísi endi með uppeldisfélaginu
Fótbolta nördinn - Fótbolti.net vs Fylkir
„Myndi ekki vilja fara aftur upp á geðheilsuna“
17 ára á toppnum í Danmörku - „Finnst ég vera á sama getustigi ef ekki betri“
Ísak Andri tók fund með meisturunum - „Skoða alla möguleika núna í janúar“
Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs KR
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
   mið 18. júlí 2018 21:30
Elvar Geir Magnússon
Þrándheimi
Anton Ari: Dómgæsla eins og þetta sé eitthvað grínmót
watermark Bendtner á vítapunktinum gegn Antoni.
Bendtner á vítapunktinum gegn Antoni.
Mynd: Richard Sagen/Adresseavisen
„Það er pirringur og maður er vonsvikinn," sagði Anton Ari Einarsson, markvörður Vals, sem skiljanlega var sár og svekktur eftir tapið gegn Rosenborg í kvöld.

Valsmenn féllu úr leik á dramatískan hátt en búlgarskur dómari leiksins stal algjörlega senunni.

Lestu um leikinn: Rosenborg 3 -  1 Valur

Þegar staðan var 2-1 fyrir Rosenborg en Valur á leiðinni áfram samanlagt dæmdi dómarinn vítaspyrnu í uppbótartima.

„Þetta er ótrúlega súrt. Ég skil ekki hvað hann er að spá hérna í lokin. Hann veifar puttanum fyrst og segir nei, en svo breytir hann um skoðun. Það er ótrúlegt. Ég trúði þessu ekki. Við erum ekki að spila í einhverju grínmóti. Þetta er Meistaradeildin og maður hélt að dómararnir væru starfi sínu vaxnir... en svona er þetta," sagði Anton en fáir botnuðu í ákvörðunum dómarans sem dæmdi þrjár vítaspyrnur.

Anton var skuggalega nálægt því að verja vítið sem réði úrslitum en hann varði boltinn í slá og inn.

„Ég sofna seint í kvöld held ég. Maður mun hugsa um hversu tæpt þetta var. Það er ólýsanlegt hvað maður er svekktur, leiður og pirraður yfir þessu öllu saman."

Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir