Tottenham heimsækir Olympiakos til Grikklands í fyrsta leik dagsins í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
Leikurinn hefst klukkan 16:55 en í hinum leik riðilsins mætast Bayern München og Rauða Stjarnan í kvöld.
Tottenham fór alla leið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili en beið þar lægri hlut gegn Liverpool.
Varnarmennirnir Danny Rose og Serge Aurier eru hvíldir og ferðuðust ekki með Tottenham til Grikklands. Juan Foyth er ekki klár og á meiðslalistanum eru Ryan Sessegnon og Giovani Lo Celso sem keyptir voru í sumar.
Byrjunarlið Tottenham: Lloris (f), Alderweireld, Sanchez, Vertonghen, Davies, Winks, Ndombele, Eriksen, Dele, Lucas, Kane.

Leikir dagsins:
16:55 Olympiakos - Tottenham (Stöð 2 Sport 2)
16:55 Club Brugge - Galatasaray
19:00 PSG - Real Madrid (Stöð 2 Sport 2)
19:00 FC Bayern - Rauða stjarnan (Stöð 2 Sport 3)
19:00 Shakhtar Donetsk - Man City (Stöð 2 Sport 4)
19:00 Atletico Madrid - Juventus (Stöð 2 Sport 5)
19:00 Dinamo Zagreb - Atalanta
19:00 Bayer Leverkusen - Lokomotiv Moskva
Athugasemdir