Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 20. nóvember 2021 16:37
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Liverpool og Arsenal: Robertson ekki í hóp - Partey byrjar
Mynd: EPA
Liverpool og Arsenal mætast í loka leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni kl 17:30. Byrjunarliðin eru mætt.

Jordan Henderson og Andy Robertson eru að kljást við meiðsli. Henderson er þó á bekknum en Robertson ekki í hóp. Kostas Tsimikas og Thiago eru í þeirra stað í byrjunarliði Liverpool.

Thomas Partey er mættur aftur í byrjunarlið Arsenal en hann kemur inn í liðið fyrir Maitland-Niles en það er eina breytingin frá sigrinum gegn Watford fyrir landsleikjahléið.

Leikurinn hefst kl 17:30

Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Matip, Van Dijk, Tsimikas, Fabinho, Thiago, Oxlade-Chamberlain, Salah, Jota, Mane.

Arsenal: Ramsdale, Tomiyasu, Gabriel, White, Tavares, Partey, Lokonga, Saka, Smith Rowe, Lacazette, Aubameyang.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner