
„Bara mjög sáttur með frammistöðuna og úrslitn. Þetta er alltaf smá óþægilegur leikur að fara í en við byrjuðum þetta sterkt, skorum tvö snemma og það setti tóninn og svo vorum við í vandræðum með að finna fleiri færi það sem eftir lifði fyrri hálfleiks en silgdum þessu vel heim í lokin." voru fyrstu viðbrögð Ásgeirs Eyþórssonar fyrirliða Fylkismanna eftir sigurinn á Úlfunum í dag og er liðið komið áfram í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins.
Lestu um leikinn: Fylkir 5 - 0 Úlfarnir
Fylkismenn stjórnuðu leiknum frá upphafi til enda og var Ásgeir spurður hvort mörkin hefðu mátt vera fleiri.
„Nei nei ég held við séum alveg sáttir með fimm. Við þurftum að vera með „focus„ og ekki gleyma okkur aftast, maður vissi það að þeir hefðu getað refsað með á „counternum„ og við vorum bara mjög solid held ég."
Fylkismenn féllu úr deild þeirra bestu á síðasta tímabili og leika í Lengjudeildinni í sumar og var Ásgeir spurður út í markmið liðsins.
„Við ætlum að fara upp klárlega. Mér lýst vel á þetta, búið að vera góður stígandi á undirbúningstímabilinu, við erum búnir að vera ná ví mjög góð úrslit núna í síðustu æfingaleikjum og fín frammistaða í dag og við förum mjög jákvæðir inn í tímabilið."
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.