Sevilla á Spáni er búið að blanda sér í baráttuna um Alejandro Gomez sem er á mála hjá Atalanta á Ítalíu.
Frá þessu greina erlendir miðlar en Gomez er á förum frá Atalanta eftir yfir 200 leiki fyrir félagið í Serie A.
Gomez hefur ekki spilað síðan í desember en það andar köldu á milli hans og Gian Piero Gasperini, stjóra liðsins.
Mörg lið hafa áhuga á þessum 32 ára gamla leikmanni sem kostar í kringum 15 milljónir evra.
Juventus var einnig orðað við Gomez en Sevilla mun reyna að tryggja sér þjónustu hans á næstu dögum eða vikum.
Gomez vill semja við félag í toppbaráttu svo hann eigi möguleika á sæti í argentínska landsliðinu fyrir Copa America.
Athugasemdir