Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 23. febrúar 2023 23:43
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu Fernandes þruma boltanum í varnarlausan De Jong
Bruno Fernandes og Frenkie de Jong eftir atvikið
Bruno Fernandes og Frenkie de Jong eftir atvikið
Mynd: Getty Images
Mikill hiti færðist í leik Manchester United og Barcelona á 60. mínútu í umspili Evrópudeildarinnar í kvöld eftir að Bruno Fernandes þrumaði boltanum í Frenkie de Jong, miðjumann Börsunga.

Fernandes var greinilega heitt í hamsi eða hreinlega að senda De Jong skilaboð eftir að Hollendingurinn hafnaði tækifærinu að ganga í raðir United síðasta sumar.

Þegar hálftími var eftir og staðan 1-1 fengu Börsungar aukaspyrnu eftir að Aaron Wan-Bissaka braut á De Jong fyrir teig spænska stórliðsins.

De Jong féll í grasið og mætti síðan Fernandes á ferðinni og þrumaði boltanum í varnarlausan De Jong. Portúgalski leikmaðurinn bar fyrir sig að hann hafi ekki heyrt í flautunni en hann uppskar gult spjald fyrir.

Leikmenn Barcelona hópuðust að Fernandes og ýttu honum eftir atvikið áður en dómarinn róaði niður mannskapinn. Hægt er að sjá þetta atvik hér fyrir neðan.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner