Stjarnan tapaði 3-2 gegn Íslandsmeisturum Víkings í 3. umferð Bestu deildarinnar fyrr í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Jökul Elísabetarson, þjálfara Stjörnunnar að leik loknum.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 - 2 Stjarnan
„Hörkuleikur, tvö góð lið. Ég hefði viljað sjá orkuna og trúna sem við lögðum í þetta síðustu mínúturnar á lengri köflum og framan af leik, þó að við komumst tvisvar yfir.“
„Ég var mjög ánægður með lokakaflann. Við vorum ekki bara að gera eitthvað, við vorum að gera þetta vel. Mjög aggresívir og góð hlaup. Ánægður með hvernig við hreyfðum boltann og hvernig við komum honum inn í teiginn.“
Stjarnan hefur fengið á sig sjö mörk í fyrstu þremur leikjunum. Jökull var spurður hvort að hann hefði áhyggjur af varnarleiknum.
„Nei, ég hef það nú ekki. Það eru atriði í fyrsta leiknum sem við höfum skoðað og þurfum að gera betur. Ég tel bara eitt mark í síðasta leik (seinna markið var rangur vítadómur). Það var á mér. Hérna eru tvö lið sem skora tvö og þrjú mörk.“
„Ég hef ekki áhyggjur af þessu, ég er ekki kominn þangað. Við erum að spila opinn og skemmtilegan fótbolta. Það mun koma að leik þar sem við fáum á okkur minna en tvö mörk,“ sagði Jökull.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
























