Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 23. október 2020 16:15
Magnús Már Einarsson
Líkleg byrjunarlið í El Clasico
Mynd: Getty Images
Barcelona og Real Madrid mætast í erkifjenda slag í spænsku úrvalsdeildinni klukkan 14:00 á morgun.

Bæði lið töpuðu óvænt um síðustu helgi auk þess sem pressan jókst á Zinedine Zidane, þjálfara Real Madrid, eftir 3-2 tap á heimavelli gegn Shakhtar Donetsk í Meistaradeildinni í vikunni.

Neto verður væntanlega í markinu hjá heimamönnum í Barcelona en Marc-André ter Stegen hefur verið að glíma við meiðsli.

Eden Hazard, Martin Ödegaard, Dani Carvajal og Álvaro Odriozola eru allir á meiðslalistanum hjá Real Madrid.

Marca spáir því að byrjunarliðin verði svona á morgun.
Athugasemdir
banner
banner