Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 24. febrúar 2023 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Emery: Martínez er ánægður hjá Villa
Emiliano Martínez
Emiliano Martínez
Mynd: Getty Images
Unai Emery, stjóri Aston Villa, treystir á að Emiliano Martínez verði áfram hjá félaginu næsta árið.

Martínez á eitt og hálft ár eftir af samningi sínum hjá Villa en hann vill ólmur reyna fyrir sér í Meistaradeildinni eftir að hafa unnið HM með Argentínu á síðasta ári.

Markvörðurinn er á lista hjá mörgum félögum en Emery segir að hann sé ánægður hjá félaginu og sé klár í að hjálpa félaginu að komast á betri stað í deildinni.

„Hann er bæði rosalega góður markvörður og náungi. Hann hefur bætt sig mikið og er núna með reynslu. Hann er besti markvörðurinn fyrir okkur,“ sagði Emery.

„Við þurfum að njóta lífsins með hann hér. Hann er skuldbundinn Villa og sérstaklega núna eftir að hafa unnið HM.“

„Það var mjög mikilvægt fyrir hann en hann veit líka að nú er ný áskorun hjá félaginu því þetta félag keypti hann fyrir þremur árum og þess vegna er hann rosalega ánægður.“

„Ég hef rætt við hann hvernig við getum unnið saman og núna mun hann berjast með okkur og reyna að nýta það í næstu leikjum og næsta árið. Við munum vinna í þessu verkefni, bæta hann og reyna að nota reynslu hans með því að hjálpa öðrum leikmönnum, félaginu og styðja Aston Villa,“
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner