Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   mið 24. júní 2020 20:46
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Þrumufleygur frá Fabinho
Fabinho lét vaða fyrir utan teig og skoraði
Fabinho lét vaða fyrir utan teig og skoraði
Mynd: Getty Images
Brasilíski miðjumaðurinn Fabinho er að gulltryggja sigur Liverpool á Crystal Palace á Anfield en staðan er 4-0 heimamönnum í vil. Sadio Mane gerði fjórða markið.

Trent Alexander-Arnold kom Liverpool yfir með marki úr aukaspyrnu áður en egypski snillingurinn Mohamed Salah bætti við öðru af stuttu færi eftir sendingu frá Andy Robertson.

Fabinho gerði annað mark sitt á tímabilinu en fyrra markið var skot fyrir utan teig í góðum sigri á Manchester City. Það var svipuð uppskrift í kvöld en hann skoraði langt fyrir utan teig og átti Wayne Hennessey ekki möguleika á að verja.

Hægt er að sjá markið með því að smella á tengilinn fyrir neðan.

Sjáðu markið með því að smella hér
Athugasemdir
banner
banner