Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
Arna Eiríks klár í slaginn: Ekki alveg þessi týpísku meiðsli
Gísli Eyjólfs: Hefði verið rómantík að fá að enda ferlana saman
Spáin kom Sigga á óvart: Eina sem þetta gerir er að henda bensíni á klúbbinn
Haraldur Freyr: Ætlum að ná í sigur í Frostaskjóli
Jói Kalli: Spurning hvort það verði Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn
Ísak nýr fyrirliði FH: Var einn af þeim yngri en orðinn einn sá elsti
Kosinn bestur fyrir mót - „Stoltur og pínu kitl að leikmenn kjósi mann"
Hemmi segist elska Brazell - „Alltaf eitthvað blaður og bull“
   þri 24. október 2023 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðný Árna: Spennt að spila í kuldanum á móti þessum sterku liðum
Guðný Árnadóttir.
Guðný Árnadóttir.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
„Það er gaman að koma hingað að spila alvöru leiki á móti góðum liðum," sagði Guðný Árnadóttir, varnarmaður íslenska landsliðsins, í samtali við Fótbolta.net í dag.

Stelpurnar spila á föstudaginn gegn Danmörku í Þjóðadeildinni og nokkrum dögum síðar mæta þær Þýskalandi. Þetta verða tveir gríðarlega erfiðir leikir.

„Ég er bara bjartsýn. Síðasti leikur á móti Þýskalandi var erfiður, á útivelli. Við þekkjum þær betur núna og ættum að geta stoppað þær betur. Vonandi getum við gert betur í þeim leik."

Hún segir það gaman að koma heim á Laugardalsvöll og spila fyrir framan Íslendinga.

„Jú, mjög gaman. Ég var að lenda og það er geggjað að vera komin aftur. Ég er ótrúlega spennt að spila hérna í kuldanum á Laugardalsvelli á móti þessum sterku liðum," sagði Guðný.

„Við ætlum að spila góðan leik á móti Danmörku og koma svo fullar sjálfstraust á móti Þýskalandi."

Hægt er að sjá allt viðtalið í spilaranum hér fyrir ofan þar sem Guðný talar um tíma sinn hjá AC Milan og undanfarnar vikur þar.
Slapp
banner
banner