banner
   mið 24. nóvember 2021 09:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Benzema fundinn sekur og fær skilorðsbundinn fangelsisdóm
Valbuena og Benzema
Valbuena og Benzema
Mynd: Getty Images
Karim Benzema, leikmaður Real Madrid og franska landsliðsins, hefur verið fundinn sekur um að taka þátt í að reyna kúga fé út úr Mathieu Valbuena, fyrrum samherja sínum í franska landsliðinu, með kynlífsmyndbandi.

Niðurstaðan í málinu er sú að Benzema fær eins árs skilorðsbundinn fangelsisdóm og þarf að greiða 75 þúsund evrur í sekt.

Málið kom upp 2015 og í kjölfarið misstu bæði Valbuena og Benzema sæti sitt í franska landsliðinu. Í landsliðsferð hvatti Benzema Valbuena til að borga fjárkúgurunum sem hann var milligöngumaður fyrir.

Benzema var einn af fimm aðilum sem mættu fyrir rétt í síðasta mánuði til að svara fyrir sína aðkomu að málinu. Benzema hefur alltaf neitað sök og haldið því fram að hann hafi einungis verið að reyna að hjálpa Valbuena.

Hvorki Benzema né Valbuena voru viðstaddir þegar dómur var kveðinn í Versölum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner