Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Murillo - Liverpool undirbýr mettilboð í Neves - Man Utd vill halda Casemiro
   mán 24. nóvember 2025 15:10
Elvar Geir Magnússon
Tveir stjórnendur Rangers látnir taka pokann sinn
Ibrox, heimavöllur Rangers í Glasgow.
Ibrox, heimavöllur Rangers í Glasgow.
Mynd: EPA
Skoska félagið Rangers í Glasgow er búið að reka framkvæmdastjórann Patrick Stewart og íþróttastjórann Kevin Thelwell. Stuðningsmenn Rangers höfðu snúist gegn þeim eftir hrikalega byrjun á tímabilinu.

Rangers vann aðeins einn af átta fyrstu deildarleikjum tímabilsins og hefur einnig verið að fá slæm úrslit í Evrópudeildinni.

Úrslitin hjá Rangers í skosku deildinni hafa orðið betri síðan Danny Röhl var ráðinn til að taka við af Russell Martin sem var rekinn.

Rangers er í eigu Bandaríkjamanna en stjórnarformaðurinn Andrew Cavenagh leiðir leitina að nýjum mönnum í stöður framkvæmdastjóra og íþróttastjóra.


Athugasemdir
banner