Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 25. febrúar 2021 18:51
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið ensku liðanna: Vardy fremstur - Þrír varamarkmenn hjá Utd
Matic byrjar en Cavani er ekki í hóp
Matic byrjar en Cavani er ekki í hóp
Mynd: Getty Images
Manchester United og Leicester eru þau ensku lið sem hefja sinn seinni leik í 32-liða úrslitum klukkan 20:00. Man Utd mætir Real Sociedad eftir 4-0 útisigur í fyrri leik liðanna. Leicester gerði 0-0 jafntefli við Slavia í Prag.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, gerir þrjár breytingar frá leiknum í síðustu viku. Victor Lindelöf, Nemanja Matic og Anthony Martial koma inn í liðið. Það vekur athygli að United er með þrjá markmenn á bekknum.

Sociedad hefur einungis unnið fimm af síðustu 21 leik hjá sér. Sociedad var síðasta spænska lið sem United vann í einvígi, það var tímabilið 2013/14.

Hjá Leicester vantar James Maddison og þá byrjar Harvey Barnes á bekknum. Hamza Choudhury byrjar inn á miðsvæðinu og Cengiz Under á hægri vængnum. Jamie Vardy er á sínum stað í fremstu víglínu.

Byrjunarlið Man Utd: Henderson, Wan-Bissaka, Bailly, Lindelöf, Telles Fred, Matic, Greenwood, Bruno, James, Martial.

(Varamenn: De Gea, Bishop, Grant, Maguire, Rashford, Diallo, Shaw, Williams, Tuanzebe, Galbraith, Shoretire.)

Byrjunarlið Leicester: Schmeichel, Amartey, Evans, Soyuncu, Thomas, Tielemans, Nididi, Albrighton, Chodhury, Under, Vardy.

(Varamenn: Ward, Jakupovic, Barnes, Ricardo, Mendy, Castagne, Fuchs, Leshabela, Tavares, Flynn )

Ögmundur Kristinsson er ekki í Evrópudeildarhópi Olympiakos sem leiðir 2-4 gegn PSV. Leverkusen er þá 3-4 undir gegn Young Boys og Roma leiðir 2-0 gegn Braga. Milan og Rauða Stjarnan eru með jafna stöðu, 2-2 eftir leikinn í Belgrad.

Leikirnir sem byrja klukkan 20:
Club Brugge 20:00 Dynamo K.
Manchester Utd 20:00 Real Sociedad
Milan 20:00 Crvena Zvezda
Leicester City 20:00 Slavia Praha
Roma 20:00 Braga
Dinamo Zagreb 20:00 FK Krasnodar
Bayer 20:00 Young Boys
PSV 20:00 Olympiakos
Athugasemdir
banner
banner
banner