Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 25. febrúar 2023 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Casemiro: Ég vil vera þekktur fyrir að vinna titla
Mynd: Getty Images

Casemiro gekk til liðs við Manchester United frá Real Madrid síðasta sumar og hefur komið gríðarlega sterkur inn.


Hann hefur verið mikilvægur fyrir liðið sem aftasti miðjumaður og einnig skorað mikilvæg mörk.

Hann er staðráðinn í að vinna titla hjá félaginu.

„Ég vil vera þekktur hérna fyrir að vinna titla, það er það mikilvægasta. Við vitum að það er erfitt, sérstaklega Úrvalsdeildina þar sem allir leikir eru erfiðir," sagði Casemiro.

„Ég vil vinna titla og mikilvæga leiki hérna. Það er ekki auðvelt, við vitum það, þetta er erfiðasta deild í heimi en ég vil vera þekktur fyrir það."


Athugasemdir
banner
banner
banner