Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. febrúar 2023 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Guardiola: Foden er demanturinn okkar
Mynd: Getty Images

Phil Foden hefur fengið fá tækifæri hjá Pep Guardiola í liði Manchester City að undanförnu og það hefur vakið upp spurningar hjá mörgum.


Foden hefur aðeins byrjað einn leik af síðustu átta og var ónotaður varamaður í 1-1 jafntefli liðsins gegn RB Leipzig í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í vikunni.

Guardiola var spurður út í enska landsliðsmanninn á fréttamannafundi fyrir leiki helgarinnar.

„Ef þú ætlar að segja að ég treysti ekki Phil [Foden], gleymdu því. Phil er demanturinn okkar. Ég vil að Phil pressi á Grealish og Mahrez. Ég segi alltaf við hann: Þú ert ungur, næsta tímabil er nýtt upphaf'. Ef þú ert aðeins slakari á þessu tímabili miðað við síðasta, það er bara eðlilegt," sagði Guardiola.

„Hvernig þú höndlar það er spurningin. Hann æfir eins og vitleysingur, það er engin spurning um það og hann mun snúa aftur."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner