Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. febrúar 2023 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Klopp: Ég er nákvæmlega á þeim stað sem ég vil vera á
Mynd: EPA

Jurgen Klopp stjóri Liverpool er alls ekki á faraldsfæti en einhverjar vangaveltur hafa verið um það upp á síðkastið.


Það hefur ekki gengið vel hjá liðinu á þessari leiktíð og einhverjar sögur fóru af stað um að eigendur félagsins væru að íhuga að selja félagið.

FSG sem á félagið sendi frá sér yfirlýsingu um að félagið væri ekki til sölu og þá fóru sögur af stað um að Jurgen Klopp vildi fara frá félaginu þar sem hann fengi ekki nægan stuðning til leikmannakaupa.

Hann hefur slegið á þær sögusagnir.

„Ég er hér hjá Liverpool, ég er nákvæmlega á þeim stað sem ég vil vera á. Já, nákvæmlega á þeim stað sem ég vil vera á," sagði Klopp.

Liverpool heimsækir Crystal Palace á Selhurst Park í kvöldleik í kvöld kl. 19:45.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner