Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. febrúar 2023 14:17
Elvar Geir Magnússon
Þingið tveimur fulltrúum frá því að vera ólöglegt
Frá ársþinginu í fyrra.
Frá ársþinginu í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kvennalið ÍBV fékk Drago styttuna.
Kvennalið ÍBV fékk Drago styttuna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nú stendur yfir ársþing KSÍ sem er að þessu sinni haldið á Ísafirði. 70 af 138 fulltrúum eru mættir vestur en hefði verið tveimur fulltrúum minna hefði þingið verið ólöglegt.

Truflun var á flugsamgöngum í morgun vegna veðurs og einhverjir fulltrúar skiluðu sér seint.

Smelltu hér til að fylgjast með í beinni

Háttvísiviðurkenningar fyrir árið 2022
Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum á föstudag að Drago stytturnar tvær, sem veittar hafa verið til háttvísustu liða í tveimur efstu deildum karla um langt árabil, verði frá og með ársþingi 2023 veittar háttvísustu liðum í efstu deild karla og efstu deild kvenna, og að sú breyting taki þannig strax gildi við veitingu háttvísiverðlauna fyrir keppnistímabilið 2022.

Árlegar viðurkenningar KSÍ fyrir háttvísi og prúðmennsku til liða eru jafnan afhentar í aðdraganda ársþings eða á ársþinginu sjálfu eftir atvikum. Í öllum tilvikum viðurkenninga er stuðst við fjölda gulra og rauðra spjalda í viðkomandi móti.

Háttvísiviðurkenningar fyrir árið 2022:

Besta deild kvenna - ÍBV (Drago stytta)
Lengjudeild kvenna - Grindavík
2. deild kvenna - Hamar
Besta deild karla - Stjarnan (Drago stytta)
Lengjudeild karla - Fylkir
2. deild karla – Njarðvík og Ægir
3. deild karla - Elliði
4. deild karla - KFB

Sagan á bak við Drago stytturnar

Árið 1975 gaf franskur knattspyrnuáhugamaður, Drago að nafni, KSÍ þessar styttur, en hann hafði þá þegar gefið sams konar styttur til 34 annarra landa í sama tilgangi, til að verðlauna knattspyrnulið fyrir heiðarleika og háttvísi. Albert Guðmundsson, fyrrverandi formaður KSÍ tók við styttunum frá Drago og kom þeim til KSÍ og þáverandi formaður KSÍ, Ellert B. Schram afhenti stytturnar í fyrsta sinn það ár.

Drago þessi, sem var fyrrum knattspyrnumaður sjálfur, var gullsmiður sem hafði byrjað fyrst á gerð verðlaunapeninga og merkja fyrir knattspyrnufélög en síðar snúið sér að gerð stærri verðlaunagripa. Honum hafði þótt nóg um hörkuna sem komin væri í knattspyrnuna og vildi með þessu framlagi sínu stuðla að betri og prúðmannlegri leik. Þessir gripir áttu sem sagt að verðlauna heiðarlega framkomu leikmanna og prúðmennsku áhorfenda. Þessi háttur væri til að mynda víða hafður á í Frakklandi og væri þá ýmist liðunum, eða borgunum sem liðin væri frá, veitt þessi viðurkenning.
Athugasemdir
banner
banner