Einar Hjörleifsson markmaður Víkings Ólafsvík var á báðum áttum með hvernig honum liði eftir tapið í kvöld á móti Valsmönnum í 32 liða úrslitum Valitorsbikarins.
„Þetta er að vissu leyti helvíti súrt sko en ég eiginlega veit það ekki. Þetta var undarlegt Við allavegana lögðum okkur fram í þetta og það er það sem skiptir máli. Við erum búnir að spila í 120 mínútur + og njóta þess í þessu góða veðri og fínum velli. Við gátum ekkert meira, " sagði Einar í samtali við Fótbolta.net eftir leikinn.
„Mér fannst starfsmennirnir á vellinum ekkert alltof, hvað ég að segja. Hressir!" sagði Einar og var þá að tala um dómara leiksins.
„Mér fannst þeir bera alltof mikla virðingu fyrir Valsliðinu. Þeir voru að henda sér í grasið eins og þeir væru skíthræddir og dómarinn féll í þessa gryfju og hann til dæmis gefur þeim að mínu mati ódýrt víti "
Einar bjargaði vítaspyrnu í kvöld og hefur svosem verið þekktur fyrir það í gegnum tíðina að standa sig þegar dæmt er vítaspyrna á Víkingana, hann var ekkert farinn að hræðast það að mæta Valsmönnum í vítaspyrnukeppni.
„Við hefðum slátrað þeim þar sko"
Nánar er rætt við Einar í sjónvarpinu hér að ofan






















