,,Þetta er fyrsti sigurinn í 8 eða 9 leikjum. Við erum í skýjunum," sagði David James markvörður og aðstoðarþjálfari ÍBV eftir 1-0 sigur liðsins á Fylki í kvöld.
,,Ég held að Ragna verði ekki ánægð með að við höfum unnið liðið hennar," bætti James við og átti þar við Rögnu Lóu Stefánsdóttur eiginkonu Hermanns Hreiðarssonar en hún þjálfar kvennalið Fylkis.
,,Ég held að Ragna verði ekki ánægð með að við höfum unnið liðið hennar," bætti James við og átti þar við Rögnu Lóu Stefánsdóttur eiginkonu Hermanns Hreiðarssonar en hún þjálfar kvennalið Fylkis.
Magnús Þórisson sýndi James gula spjaldið á 83. mínútu fyrir að tefja leikinn. James vill meina að sökin hafi ekki verið sín.
,,Þetta voru boltastrákarnir. Ég er ekki boltastrákur er það," sagði James brosandi. ,,Dómararnir taka ekki ranga ákvörðun. Ég var samt fljótari að taka næstu markspyrnur eftir þetta."
James meiddist á öxl í síðari hálfleik en hann kláraði leikinn þrátt fyrir það. ,,Ég svaf í einbreiðu rúmi á hóteli í nótt og öxlin er svolítið aum eftir það en ég náði að klára leikinn."
James verður í vetur sérfræðingur hjá BT Sport á Englandi í sjónvarpsútsendingum frá ensku úrvalsdeildinni.
Um síðustu helgi flaug hann heim eftir að hafa unnið við leik á Englandi á laugardegi. Hann gerði það ekki um þessa helgi en næstu helgar verður hann á ferð og flugi.
,,Ég verð á Englandi á laugardögum og kem til baka og spila á sunnudögum. Það eru ennþá fimm leikir og það verður erfitt að ná Evrópusæti en við ætlum að enda vel," sagði James.
Athugasemdir























