Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   lau 25. október 2025 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Mikilvægt þríeyki í viðræðum við Aston Villa
Mynd: EPA
Mynd: Sky Sports
Aston Villa hefur ekki átt sérlega góða byrjun á nýju tímabili en hefur sett það í forgang hjá sér að semja við lykilmenn liðsins.

Félagið er í viðræðum við Morgan Rogers, Matty Cash og fyrirliðann John McGinn.

Cash og McGinn eiga ekki nema um 20 mánuði eftir af samningi við Villa en Rogers er samningsbundinn félaginu til 2030.

Þetta eru lykilmenn í liði Unai Emery og staðfesti hann í viðtali að félagið sé á leið í samningaviðræður við þá alla. Rogers mun fá endurbættan samning þar sem hann er eftirsóttur af stórliðum og þá munu Cash og McGinn fá lengri samninga.

McGinn fyrirliði er meðal annars eftirsóttur af Everton en hann er 31 árs gamall.

„Félagið er að vinna í samningaviðræðum við Matty Cash, Morgan (Rogers) og John McGinn. Þetta eru lykilmenn fyrir okkur sem eru með mjög jákvætt hugarfar og frábær gæði," sagði Emery meðal annars á fréttamannafundi fyrir tap gegn Go Ahead Eagles í Hollandi á fimmtudag.

   21.10.2025 06:00
Fyrirliði Villa að semja - Höfnuðu tilboði frá Everton

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
2 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner
banner