![Lengjudeildin](/images/leng_150x150.png)
„Ömurlegt að tapa.“ sagði stuttorður Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, eftir tap síns liðs gegn Leikni í 9. umferð Lengjudeild karla núna í kvöld.
Lestu um leikinn: Leiknir R. 3 - 1 Þróttur R.
Leiknir byrjaði leikinn vel og voru þeir komnir með 2-0 forystu þegar stundarfjórðungur var liðinn af leiknum.
„Við gefum leikinn soldið frá okkur með slæmum kafla í fyrri hálfleik. Þeir skora tvö mörk á stuttum tíma. Við byrjum á því að fá tvö þrjú færi og erum bara ekki nógu klínískir til þess að slútta því. Þannig við vorum lélegir í teigunum í dag.“
Mörkin sem Þróttur fékk á sig í fyrri hálfleik voru nokkuð einföld fyrir Leikni.
„Fyrsta markið er bara eitthvað klafs og þeir taka frákastið, eigum að gera miklu betur þar. Mark tvö er bara úr einhverju innkasti sem er náttúrulega alveg skelfilegt. Þá ertu auðvitað kominn í það að þurfa opna þig soldið. Við reyndum að vera þolinmóðir en svo opnuðum við okkur alltaf meira og meira.“
Undir lok leiksins minnkaði Jorgen Pettersen muninn áður en Omar Sowe gerði síðan út um leikinn með því að skora þriðja mark Leiknis í uppbótartíma.
„Við komum til baka og erum með meðbyrinn og meðvindinn með okkur. Erum búnir að skora 2-1 og auðvitað svekkjandi að ná ekki að gera eitthvað meira út úr því en það hefði þá bara verið eitt stig sem var ekki planið í dag.“
Viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.