Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 27. janúar 2021 22:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spænski bikarinn: Barcelona lenti í kröppum dansi
De Jong skoraði sigurmark Barcelona.
De Jong skoraði sigurmark Barcelona.
Mynd: Getty Images
Barcelona tryggði sér farseðilinn í 8-liða úrslit spænsku bikarkeppninnar með sigri á Rayo Vallecano, sem leikur í B-deild.

Þetta var alls ekki auðveldur leikur fyrir Börsunga og þeir lentu undir á 63. mínútu. Lionel Messi jafnaði hins vegar metin stuttu síðar Frenkie de Jong skoraði sigurmarkið þegar tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

De Jong hefur verið að gera mjög vel að undanförnu og hann var hetja Börsunga í kvöld.

Sevilla burstaði Valencia 3-0 og Almeria hafði betur gegn Osasuna í vítaspyrnukeppni.

Rayo Vallecano 1 - 2 Barcelona
1-0 Francisco Garcia ('63 )
1-1 Lionel Andres Messi ('69 )
1-2 Frenkie de Jong ('80 )

Sevilla 3 - 0 Valencia
1-0 Luuk de Jong ('20 )
2-0 Luuk de Jong ('33 )
3-0 Ivan Rakitic ('38 )

Almeria 0 - 0 Osasuna (5-4)
Athugasemdir
banner
banner