Það er allt morandi í Evrópuleikjum þennan fimmtudaginn og nóg af Íslendingum sem verða í eldlínunni í þeim leikjum sem hefjast 17:45.
Landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson og hans menn í Midtjylland eru á toppnum í Evrópudeildinni með fullt hús stiga en þeir fá erfiðasta verkefnið til þessa er þeir heimsækja Roma í Róm. Elías er á sínum stað í byrjunarliði danska liðsins.
Freyr Alexandersson fer með lærisveina sína í Brann til Thessaloniki í Grikklandi en andstæðingur þeirra verður PAOK, eitt af stærstu félögum gríska boltans. Eggert Aron Guðmundsson er í byrjunarliði Brann en Sævar Atli Magnússon er á meiðslalistanum og er staddur hér á Íslandi.
Hákon Arnar Haraldsson er í byrjunarliði Lille sem mætir Dinamo Zagreb en Lille er í nítjánda sæti.
Í Sambandsdeildinni byrjar Gísli Gottskálk Þórðarson á bekknum hjá Lech Poznan sem mætir Lausanne frá Sviss.
fimmtudagur 27. nóvember
Evrópudeildin
17:45 Feyenoord - Celtic
17:45 PAOK - SK Brann
17:45 Ludogorets - Celta
17:45 Fenerbahce - Ferencvaros
17:45 Roma - Midtjylland
17:45 Lille - Dinamo Zagreb
17:45 Plzen - Freiburg
17:45 Porto - Nice
17:45 Aston Villa - Young Boys
20:00 Bologna - Salzburg
20:00 Rangers - Braga
20:00 Go Ahead Eagles - Stuttgart
20:00 Rauða stjarnan - Steaua
20:00 Betis - Utrecht
20:00 Panathinaikos - Sturm
20:00 Nott. Forest - Malmö
20:00 Genk - Basel
20:00 Maccabi Tel Aviv - Lyon
Sambandsdeildin
17:45 Universitatea Craiova - Mainz
17:45 Slovan - Vallecano
17:45 Lech - Lausanne
17:45 Omonia - Dynamo K.
17:45 Hamrun Spartans - Lincoln
17:45 Olomouc - Celje
17:45 Rakow - Rapid
17:45 Zrinjski - Hacken
17:45 AZ - Shelbourne
20:00 Drita FC - Shkendija
20:00 Shamrock - Shakhtar D
20:00 Legia - Sparta Prag
20:00 Fiorentina - AEK
20:00 Rijeka - AEK Larnaca
20:00 Aberdeen - Noah
20:00 Strasbourg - Crystal Palace
20:00 Breiðablik - Samsunspor
20:00 Jagiellonia - KuPS
Athugasemdir


