Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 28. júlí 2021 10:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Meiðsli Telles hausverkur fyrir Solskjær
Alex Telles
Alex Telles
Mynd: EPA
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, glímir við vandamál þegar hann horfir á fyrstu leiki liðsins í ensku úrvalsdeildinni.

Man Utd mætir Leeds í fyrstu umferð og verður Solskjær án Luke Shaw og Alex Telles.

Telles glímir við meiðsli og Shaw fær lengra frí þar sem hann tók þátt í EM í sumar. Þeir hafa verið fyrstu kostir Solskjær í vinstri bakvarðarstöðuna.

Telles mun missa af öllum leikjum Man Utd í ágúst og líklegt er að Shaw snúi ekki í byrjunarliðið fyrr en í september.

Anthony Martial er ennþá að glíma við hnémeiðsli og enn er ekki búið að ákveða hvort Marcus Rashford fari í aðgerð eða ekki.

Manchester United mætir Leeds þann 14. ágúst í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner