Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 28. september 2020 06:00
Aksentije Milisic
Sturridge vill snúa aftur til Englands - Sheffield áhugasamt
Mynd: Getty Images
Daniel Sturridge, fyrrverandi leikmaður Chelsea og Liverpool, er að leita sér að nýju félagi en hann yfirgaf Trabzonspor fyrr á þessu ári.

Sheffield United hefur áhuga á Sturridge en liðið getur fengið hann frítt. Sturridge braut reglur tengdar veðmálum og var samningi hans við Trabzonspor rift. Hann fékk fjögurra mánaða bann fyrir athæfið.

Hinn 31 árs gamli Sturridge vill snúa aftur til Englands.

„Það eru möguleikar víða um heiminn en ég er Englendingur og ég hef alltaf elskað það að spila í ensku úrvalsdeildinni," sagði Sturridge.

„Mér líður eins og ég eigi ókláruð verkefni í Englandi og ég er ekki endilega bara að horfa til efstu deildar."
Athugasemdir
banner
banner