Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   mán 28. október 2019 14:30
Magnús Már Einarsson
Salah æfði með Liverpool í dag
Mynd: Getty Images
Mohamed Salah, framherji Liverpool, var mættur til æfinga með liðsfélögum sínum í dag.

Salah fór af velli undir lokin á sigrinum gegn Tottenham í gær vegna meiðsla á ökkla.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, sagði eftir leik að meiðslin væru ekki alvarleg og Salah æfði á ný í dag.

Salah missti af leiknum gegn Manchester United fyrr í þessum mánuði vegna meiðsla sem hann varð fyrir eftir tæklingu frá Hamza Choudhury, miðjumanni Leicester.

Joel Matip var einn í sérstöku prógrami á æfingu Liverpool í dag en hann hefur misst af síðustu tveimur leikjum vegna meiðsla á hné.
Athugasemdir
banner