Brasiíski framherjinn Alexandre Pato hefur óvænt verið orðaður við Birmingham í ensku Championship deildinni.
Birmingham hefur einungis skorað þrjú mörk í fyrstu sjö leikjum tímabilsins og Aitor Karanka, stjóri liðsins, vill styrkja sóknarlínu sína.
Hinn 31 árs gamli Pato er félagslaus eftir að hafa yfirgefið Sao Paulo á dögunum og því getur hann samið við félag þó að félagaskiptaglugginn sé lokaður.

Pato fór ungur að árum til AC Milan en ferill hans hefur ekki náð sömu hæðum og búist var við.
Pato var í stuttan tíma á láni hjá Chelsea á sínum tíma og gæti nú verið á leið aftur í enska boltann en ítölsku félögin Genoa, Spezia og Monza hafa einnig sýnt leikmanninum áhuga að undanförn.
Athugasemdir