Landsliðskonan Rakel Hönnudóttir er með áritaða Reading treyju á lottó uppboði og mun allur ágóði renna til Geðhjálpar.
Miðinn kostar aðeins 1000kr og getur þú nælt þér í hann á vefsíðu Charity Shirts.
Vinningshafi verður dreginn út í beinni útsendingu á Facebook Live mánudaginn 8. júní kl 19:00.
Rakel spilaði með Reading í ensku úrvalsdeildinni í fyrra en hefur snúið aftur heim og mun leika með Breiðabliki í sumar.
Rakel, sem er 31 árs gömul og með 103 landsleiki að baki, gjörsamlega raðaði inn mörkunum með Þór/KA og Breiðabliki áður en hún hélt í atvinnumennsku erlendis.
Charity Shirts hefur safnað 2,5 milljónum króna til góðgerðarmála í samstarfi við íþróttafólk.
Athugasemdir