Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 29. júlí 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Reyna tekur treyjunúmer Sancho
Giovanni Reyna og Erling Braut Haaland.
Giovanni Reyna og Erling Braut Haaland.
Mynd: Getty Images
Bandaríkjamaðurinn Giovanni Reyna er búinn að skipta um treyjunúmer hjá þýska stórliðinu Borussia Dortmund.

Jadon Sancho fór til Manchester United og skildi treyjumúmerið sjö eftir laust hjá Dortmund. Reyna ákvað að stökkva á tækifærið og verður hann númer sjö á næstu leiktíð.

Hinn 18 ára gamli Reyna var í treyju númer 32 á síðustu leiktíð.

Reyna er gríðarlega frambærilegur leikmaður sem fær væntanlega stærra hlutverk hjá Dortmund á komandi tímabili.

Dortmund festi fyrr í vikunni kaup á Hollendingnum Donyell Malen frá PSV. Hann verður í treyju númer á 21 hjá Dortmund.
Athugasemdir
banner
banner
banner