Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   þri 31. ágúst 2021 22:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Verður Mikael leikmaður AGF? - Sögur um risastóra upphæð
Mikael glaður á landsliðsæfingu.
Mikael glaður á landsliðsæfingu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er búið að loka félagaskiptaglugganum í Danmörku; hann lokaði klukkan tíu að íslenskum tíma.

Hvort að Mikael Neville Anderson verði leikmaður Midtjylland áfram er þó ekki öruggt.

Samkvæmt fjölmiðlum í Danmörku þá sendi AGF tilboð upp á 15 milljónir danskra króna, eða rúmar 300 milljónir íslenskra króna, í Mikael rétt áður en glugginn lokaði.

Fjölmiðlamaðurinn Klaus Egelund sagði á Twitter að félögin tvö - Midtjylland og AGF - hefðu komist að samkomulagi og taka aðrir undir með honum.

Það kemur væntanlega í ljós á næstu mínútum eða klukkutímum hvort öll gögn hafi komist á réttan stað fyrir tilsettan tíma.

Mikael vill ólmur fara frá Midtjylland, alla vega miðað við það sem hann setti á samfélagsmiðla í dag. Ef hann fer til AGF, þá verða hann og Jón Dagur Þorsteinsson liðsfélagar.


Athugasemdir
banner