Fylkir og Grindavík eigast við í Pepsi-deildinni í kvöld. Fótbolti.net tók Ólaf Örn Bjarnason tali í hádeginu.
„Hver leikur skiptir sköpum. Það hefur gengið þokkalega í síðustu leikjum og vonandi verður framhald á því," sagði Ólafur en Grindavík vann síðasta deildarleik sinn gegn Val.
„Það verður allt miklu léttara og skemmtilegra. Við förum ekki langt á því í kvöld, það verður að spila leikinn."
Grindvíkingar eru enn í neðsta sæti deildarinnar.
Viðtalið við Ólaf má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan en þar er einnig rætt um bikardráttinn sem fram fór í dag. Grindavík mun fá KR í heimsókn.





















