,,Það var kominn tími til að við myndum vinna og við gerðum það aldeilis af fullum krafti í dag," sagði Þórarinn Ingi Valdimarsson leikmaður ÍBV eftir 2-0 sigur liðsins á KR í Pepsi-deildinni í kvöld.
Tryggvi Guðmundsson og Eyþór Helgi Birgisson voru ekki með ÍBV í leknum í dag en þeir tóku út agabann.
,,Auðvitað viljum við hafa alla leikmenn í hópnum sem við getum haft. Ég ætla ekki að tjá mig um neitt agabrot eða neitt svoleiðis en við þjöppuðum okkur saman og kláruðum þennan leik."
Eyjamenn eru eftir sigurinn í 3. sæti deildarinnar, sex stigum á eftir toppliði KR og þeir stefna á að blanda sér í baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn.
,,Við erum ekkert að fela það. Við vorum í þriðja sæti í fyrra og ætlum að vera ofar en þar. Við ætlum ekki að berjast um 2. sætið, við ætlum að berjast um titilinn," sagði Þórarinn ákveðinn að lokum.
Hér að ofan má ssá viðtalið í heild sinni.























