Liverpool opið fyrir því að selja Van Dijk - Tveir á óskalista Man Utd - Suzuki til Leeds?
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
banner
   fös 24. ágúst 2012 22:02
Hafliði Breiðfjörð
Palli Einars: Alltaf smá von fyrir hendi
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
,,Ég er fyrst og fremst ótrúlega ánægður með sigurinn, vinnuframlag strákanna var til fyrirmyndar. Ég er ótrúlega sáttur með það," sagði Páll Einarsson þjálfari Þróttar eftir 1-0 sigur á ÍR í 1. deildinni í kvöld.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 -  0 ÍR

,,Völlurinn var háll og kannski erfitt að eiga við boltann en mér fannst við spila mjög vel á köflum og ég var mjög ánægður með það. Menn voru að berjast og vinna og reyndu að spila sem gekk mjög vel á köflum. Ég er mjög ánægður með spilamennskuna í dag," sagði Páll.

Þróttarar fengu fínustu færi í leiknum til að skora fleiri mörk en gekk ekki.

,,Það er þetta að koma boltanum yfir línuna, það er þetta stóra vandamál. Auðvitað fengum við einhver færi en við skoruðum eitt og fengum ekkert á okkur og það dugði í dag."

Ólafsvíkingar sem eru í 2. sæti töpuðu stigum með því að gera 1-1 jafntefli við Leikni í kvöld og því færðust Þróttarar nær þeim í töflunni og fimm stig skilja þau núna á milli.

,,Auðvitað er alltaf smá von fyrir hendi, það er alveg ljóst en það er lítið eftir af mótinu og við svolítið á eftir. Auðvitað þurfum við bara að hugsa um okkur og klára okkar og sjá hvar við verðum í lokin."

Nánar er rætt við Pál í sjónvarpinu að ofan.
Slapp
banner
banner