,,Það var mjög gott að fá þrjú stig. Mér fannst við vinna fyrir þeim," sagði Ejub Purisevic þjálfari Víkings Ó. eftir 1-0 sigur á ÍR í fyrstu deildinni í dag.
,,Þetta var mjög þungur leikur frá fyrstu mínútu. Við skoruðum eitt flott mark og sköpuðum nokkur færi í viðbót. Við gerðum það sem þurfti."
Ólafsvíkingar eru í kjörstöðu í öðru sæti deildarinnar og nægir eitt stig í síðustu tveimur leikjunum til að komast upp. Liðið mætir KA um næstu helgi og Víkingi R. í lokaumferðinni.
,,Við reynum bara að taka næsta leik, fá stig út úr honum og síðan tökum við púlsinn eftir það."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















